Blómlegt kórastarf fyrir börn og unglinga
Við
í Hafnarfjarðarkirkju erum stolt af Barna- og unglingakór okkar. Helga
Loftsdóttir, stjórnandi kóranna til margra ára, hefur vakið athygli fyrir þá fagmennsku,
umhyggju og alúð sem hún leggur í kórastarfið sem birtist kannski best í því
hversu fallega krakkarnir syngja og hversu frjálsleg þau eru.
Nú
bjóðum við hjartanlega velkomna til starfa Brynhildi Auðbjargardóttur sem mun
stjórna Barnakórnum en Helga Loftsdóttir Unglingakórnum. Brynhildur hefur getið
sér gott orðspor í kórastarfi og er sprenglærð á því sviði.
Með
þessum frábæru kórstjórum mun Helga Sigríður Kolbeins, fyrrum kórfélagi, sjá um
píanóleik á æfingum og tónleikum ásamt Guðmundi Sigurðsyni organista. Við
bjóðum einnig Helgu Sigríði hjartanlega velkomna til starfa.
Nánar
um æfingatíma og skráningu í kóranna má finna hér:
https://hafnarfjardarkirkja.is/barna-ungingakor/
Brynhildur Auðbjargardóttir hóf tónlistarnám sitt í Kór Öldutúnsskóla þar sem hún söng
undir stjórn Egils Friðleifssonar. Hún lauk tónmenntakennaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1989 og stundaði síðar framhaldsnámi í
söngkennslufræðum og aðferðafræði kórstjórnar í Tónlistarháskóla Noregs.
Lokaritgerð hennar fjallaði um barnsröddina í kór. Einnig lagði hún stund á
skipulag og stjórnun (tónlistarviðburða) við sama skóla. Brynhildur hefur kennt
tónlist í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskólum ásamt því að halda
námskeið fyrir starfsfólk leikskóla. Fyrir utan það að stjórna Kór
Öldutúnsskóla þá hefur Brynhildur stjórnað Ískórnum í Ósló, Kvennakór
Hafnarfjarðar og Kvennakór Öldutúns. Hún var kórstjóri Barnakórs kirkjunnar á
árunum 1990 – 1995.
Helga Sigríður Kolbeins er nemandi í Menntaskóla í tónlist og stefnir á
framhaldspróf þar á þessu skólaári. Hún hefur unnið til verðlauna í keppnum hér
heima sem og erlendis.
Helga Loftsdóttir hóf tónlistarnám sitt sem
fiðlunemandi í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og söng í barna- og ungmennakórum
undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg og Margrétar Pálmadóttur. Árið 1997 lauk
hún tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og hefur síðan lokið
Markþjálfunar námi og meistaranámi í Forystu og stjórnun. Helga hefur kennt
tónlist í grunn- leik- og tónlistarskóla, er höfundur námsefnis í tónmennt og
hefur tekið þátt í að skipuleggja fjölmenn íslensk og norræn kóramót. Hún hefur
stýrt nokkrum kórum frá árinu 1995 lengst af sem kórstjóri Barna- og
unglingakórs í Hafnarfjarðarkirkju.
Hafnarfjarðarkirkja
Til staðar fyrir íbúa Hafnarfjarðar í blíðu og stríðu í yfir 100 ár.