Saga kirkjunnar

Um kirkjuna

Hafnarfjarðarkirkja var vígð 20. desember 1914. Áður áttu Hafnfirðingar kirkjusókn að Görðum á Álftanesi.

Þegar Hafnarfjörður fékk kaupstaðar-réttindi árið 1908 komst skriður á kirkju-byggingarmálið, þótt sú hugmynd hefði reyndar komið fram áður, t.d. um miðja 19. öld að byggð yrði kirkja í Firðinum. Hafnfirðingar leituðu til Rögnvalds Ólafssonar um teikningu að kirkju og skilaði hann teikningu í febrúar 1909. Samkvæmt henni var kirkjan úr steinsteypu og átti að taka 500 manns í sæti eða þriðjung íbúa kaupstaðarins. 

Var kirkjunni valinn staður í landi sem bæjarfógeti hafði til umsjónar við Strandgötu. Framkvæmdir við kirkjugrunninn hófust haustið 1913 og lauk smíðinni á aðventu 1914. Yfirsmiður var Guðni Þorláksson, en hann andaðist úr lungnabólgu um það leyti sem smíði kirkjunnar lauk og var lík hans borið í kirkjuna á Þorláksmessu. Biskupinn, hr. Þórhallur Bjarnason, vígði kirkjuna 20. desember 1914.

Scroll to Top