Ungmennakór

Ungmennakór

Nýlega var stofnaður nýr kór í Hafnarfjarðarkirkju fyrir ungmenni á aldrinum 16 – 20 ára. Kórinn er fyrir þau sem finnst gaman að syngja krefjandi tónlist í góðum hóp.

Kórinn tekur þátt í ýmsum spennandi viðburðum innan kirkjunnar sem utan hennar og verður lagavalið því mjög fjölbreytt. 

Nýji kórinn er í samstarfi við Flensborgarskóla og fá nemendur ástundun sína í kórastarfinu metna til eininga.

Æfingatímar

Æfingar ungmennakórs 
Á fimmtudögum kl. 17:30 – 19:00 í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju

Skráning í ungmennakór

Skráning og allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá kórstjóranum Helgu Loftsdóttur í síma 695 9584 eða á
helga.loftsdottir@gmail.com

Scroll to Top