Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í fermingarfræðslu

VELKOMIN Í FERMINGARFRÆÐSLU HAFNARFJARÐARKIRKJU 🥰
Fermingarfræðslan hefst með námskeiði áður en skólinn hefst í ágúst og eftir það fer fram fræðsla u.þ.b. einu sinni til tvisvar í mánuði.
 
Námskeiðið er 19.-21. ágúst kl. 10:00-12:00. Ef börnin geta alls ekki mætt á námskeiðið fá þau aukatíma.
 
Fermingarbörnin fá fræðslu um kristna trú, kirkjuna, lífið og tilveruna og þau lífsgildi sem gott er að hafa í hávegum á lífsleiðinni. Fræðslunni lýkur með fermingarathöfn þar sem barnið játar trú sína, þiggur fyrirbæn og blessun fyrir lífsgöngu sína.
 
Fermingarfræðslan er skírnarfræðsla kirkjunnar og ef börnin eru óskírð sjá prestar um að skíra þau í samráði við foreldra eða forráðamenn. Ef börnin geta ekki mætt á námskeiðið í ágúst vegna sumarleyfa fá þau aukatíma.
Jónína og Aldís Rut, prestar kirkjunnar, og Bylgja Dís, æskulýðsfulltrúi, sjá um fermingarfræðsluna ásamt góðum gestum.
 
Lifandi, fjölbreytt og skemmtileg fræðsla
Námskeið í ágúst og fræðsla einu sinni til tvisvar í mánuði
 
Leikir, gleði, hópefli og tónlist
Byggjum upp jákvæða sjálfsmynd, traust og góð tengsl
 
Ferðalag í Vatnaskóg
Heill dagur fullur af gleði og fjöri
 
Þátttaka í helgihaldi
Innihaldsríkar fjölskyldustundir á sunnudögum
 
Þátttaka í hjálparstarfi
Skiptir máli hvað ég geri? Veitir það mér gleði að hjálpa öðrum?
 
Einstaklingsviðtöl
Viðtöl sem gera fræðsluna persónulegri
 
Slökun, íhugun, núvitund og sjálfstyrking
Aðferðir til að hvíla sig á áreitum frá tækjum og umhverfi
 
Skráning í fermingarstarfið veturinn 2024 – 2025 fer fram hér:
Nánari upplýsingar: aldisrut@hafnarfjardarkirkja.is, jonina@hafnarfjardarkirkja.is og bylgja@hafnarfjardarkirkja.is
 
Scroll to Top