Sunnudaginn 2. febrúar kl. 11:00 er kveðjumessa sr. Aldísar Rutar Gísladóttur en hún tók til starfa hjá Grafarvogskirkju í september síðastliðnum eftir góðan og farsælan tíma hjá okkur hér í Hafnarfjarðarkirkju.
Sr. Aldís Rut prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jónínu Ólafsdóttur sóknarpresti. Kári Þormar leikur á orgel og stjórnar söng Barbörukórsins.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á sama tíma.
Kaffi á eftir.
Verið öll hjartanlega velkomin!