Verið hjartanlega velkomin á Foreldramorgna í Hafnarfjarðarkirkju sem hefjast að nýju þriðjudaginn 21. janúar kl. 10:30-12:00 

Á hverjum þriðjudegi bjóðum við ykkur í notalega samveru, spjall, léttar veitingar og stundum fræðslu um áhugaverð málefni 

Foreldramorgnarnir fara fram í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju í sal er nefnist Vonarhöfn. Aðgangur er bæði Strandgötu og Suðurgötu megin. Aðstaðan þar er afar góð og hægt að koma inn með vagna ef á þarf að halda 

Umsjón með foreldramorgnunum hafa Þura og Yrja 

Nánari upplýsingar:
thuridur@hafnarfjardarkirkja.is