Fermingarafmælishátíð 19.október kl 11.00

Fermingarafmælishátíð 19.október kl 11.00

Þann 19. október kl. 11:00 verður 50, 60, 70 og 80 ára fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju.
Hátíðin hefst með þátttöku í messu þar sem fermingarafmælisbörn taka þátt í söng og ritningarlestrum.
Sr. Þuríður Björg Wiium Árnadóttir og st. Jónína Ólafsdóttir þjóna fyrir altari. Kári Þormar leikur á orgel og Barbörukórinn syngur undir hans stjórn.
Ræðumaður er Þorsteinn G. Aðalsteinsson.
Eftir messu er farið yfir í safnaðarheimilið og snæddur léttur hádegisverður, spjallað saman og rifjaðar upp skemmtilegar sögur. Í lok messunnar gefst kostur á myndatökum með hverjum hóp fyrir sig.
Maturinn kostar 3.000 kr. Posi er ekki á staðnum en hægt er að greiða með pening eða með því að millifæra.
Vonandi geta sem flest fermingarafmælisbörn tekið þátt í fagnaðinum með okkur og eru makar og aðrir sem áhuga hafa að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir að koma með.
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir hjá Ottó staðarhaldara í síma 520 5700 eða með því að senda póst á [email protected] ef þið viljið taka þátt í málsverðinum.
Sunnudagaskóli verður í safnaðarheimilinu á sama tíma.
Verið hjartanlega velkomin.
Scroll to Top