Eldriborgarasamverur hefjast að nýju þann 3. september kl. 12:00.
Stundirnar eru á þriðjudögum og hefjast með kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.00.
Að lokinni kyrrðarstund er gengið til léttrar hádegissamveru en að henni lokinni hefst skipulögð dagskrá í Hásölum með fjöldasöng og góðum gestum. Í lok hvers mánaðar verður kyrrðarstundin í formi orgeltónleika.
Umsjón með samverunum hafa sr. Sigurður Kr. Sigurðsson, Kristín Jóhannesdóttir, prestar Hafnarfjarðarkirkju og Kvennfélag Hafnarfjarðarkirkju.
Hér má sjá dagskrána í vetur: Hafnarfjarðarkirkja – Eldriborgarasamverur (hafnarfjardarkirkja.is)
Verið hjartanlega velkomin!