Nýr sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju

Umsóknarfrestur um Hafnarfjarðarprestakall, Kjalarnessprófastsdæmi, rann út 9. nóvember s.l. Auglýst var eftir sóknarpresti til þjónustu og miðað við að viðkomandi gæti hafið störf 1. desember eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að ákvörðunum um ráðningu lægi fyrir.

Kjörnefnd kaus nú í vikunni sr. Jónínu Ólafsdóttur, prest á Akranesi, til starfans og hefur starfandi biskup Íslands, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, staðfest ráðningu hennar.

Nýi presturinn
Sr. Jónína Ólafsdóttir er fædd á Egilsstöðum 1984 og ólst upp í Þingeyjarsýslu frá fimm ára aldri. Hún lauk BA-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 2008 og mag. theol.-prófi 2017, diplómaprófi í sálgæslu 2019 og vinnur nú að lokaritgerð til MA-prófs í guðfræði á sviði kristinnar hjónabandssiðfræði.
 
Sr. Jónína hefur starfað sem aðstoðarmaður dr. Arnfríðar Guðmundsdóttur, prófessors. Þá hefur hún fengist við margvísleg störf í söfnuðum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðin tólf ár.

Sr. Jónína var settur prestur í Dalvíkurprestakalli frá 1. október 2019 til 31. mars 2020. Hún var vígð 11. ágúst 2019. Hún var ráðin í febrúar á síðasta ári sem prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi. Eiginmaður sr. Jónínu er Eggert Þ. Þórarinsson, forstöðumaður í Seðlabanka Íslands, og eiga þau tvö börn.


Prestakallið
Í Hafnarfjarðarprestakalli er ein sókn, Hafnarfjarðarsókn með um átta þúsund sóknarbörn. Í prestakallinu er ein kirkja, Hafnarfjarðarkirkja. Kirkjan er vel staðsett í hjarta Hafnarfjarðar og er allur aðbúnaður og aðstaða til mikillar fyrirmyndar. Gróskumikið starf er unnið innan kirkjunnar og má þarf nefna barna- og unglingastarf sem hefur verið í miklum vexti undanfarin ár.

Scroll to Top