Minningarstund 6. mars kl.11

Minningarstund verður í Hafnarfjarðarkirkju, sunnudaginn 6. mars 2022 kl. 11, um skipverjana 25 sem fórust með togaranum SVIÐA GK 7 fyrir rétt rúmum 80 árum, 2. desember 1941.
 
Sr. Þorvarldur Karl Helgason og sr. Jónína Ólafsdóttir þjóna.
Organisti: Guðmundur Sigurðsson.
 
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Guðfinnur Vilhelm Karlsson píanónemandi í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar leikur verk eftir Bach og Beethoven.
 
Kveikt verður á kerti fyrir sérhvern skipverja og nöfn þeirra lesin upp.
 
Togarinn SVIÐI var gerður út frá Hafnarfirði og margir skipverjanna áttu heimili þar. Alls fórust 25 sjómenn, 14 þeirra voru kvæntir, 49 börn misstu föður eða fósturföður. Sumir þeirra voru fyrirvinna foreldranna. Þrír skipverjanna voru yngri en 20 ára, sá elsti var 52 ára, en flestir á aldrinum 25-49 ára.
 
Minningarstund var á sínum tíma haldin í Hafnarfjarðarkirkju,17. des. 1941, skömmu eftir sjóslysið.
 
Eftir minningarathöfnina gefst kirkjugestum tækifæri til að skoða sýningu í safnaðarheimilinu um skipverjana sem fórust með SVIÐA GK 7 og fjölskyldur þeirra, um skipið, veðrið, leitina og hætturnar sem steðjuðu að sjómönnum á tímum heimstyrjaldar.
 
Sr. Þorvaldur Karl Helgason og Egill Þórðarson loftskeitamaður settu upp sýninguna.
 
Minningarstundin og sýningin er öllum opin.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á sama tíma.
 
 
Scroll to Top