Barna- og unglingakór

Barna- og unglingakór

Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju veturinn 2024-2025

í kirkjunni eru starfræktir tveir kórar fyrir krakka í 1. – 10. bekk. Á kóræfingum er sungið saman, farið er í leiki og tækifæri gefst á að mynda ný vinatengsl. Kórastarfið snýst mikið um að undirbúa viðburði sem kórarnir taka þátt í bæði innan kirkjunnar sem utan hennar. Undanfarin ár hafa fjölmörg ungmenni tekið þátt í blómlegu kórastarfi kirkjunnar og notið sín í góðum félagsskap.

Kórarnir taka þátt í ýmsum viðburðum og því er lagavalið mjög fjölbreytt.
Fastir viðburðir síðastliðin ár hefur verið að syngja á Jólavöku við kertaljós, sameiginlegri æskulýðshátíð hafnfirskra kirkna eða á Sönghátíð barnanna í Hallgrímskirkju og á Barnakóramóti Hafnarfjarðar í Víðistaðakirkju. Einnig heldur kórinn sjálfstæða Jóla- og /eða Vortónleika þar sem afrakstur starfsins eru gerð skil.

Af framanverðu er ljóst að boðið er upp á fjölbreytt starf sem innifelur meðal annars eftirfarandi:

Góða raddþjálfun

Fjölbreytta tónlistarflóru

Þjálfun í að koma fram, bæði í kirkjunni og utan hennar.

Æfingu í að vinna með öðrum að sameiginlegu markmiði

Þjálfun í þrautseigju, virðingu og tillitsemi      

Vináttu

Þátttaka

Öll börn frá 1. -10. bekk eru velkomin í kórinn. Ætlast er til að kórfélagar mæti á æfingar og þegar kórinn kemur fram nema um veikindi sé að ræða. Lagaval miðast við þann hóp sem skráður er og því er gert ráð fyrir að þeir sem stundi æfingar mæti einnig þegar kórinn komi fram. Í upphafi annar er birt dagskrá svo að foreldrar geti gert ráð fyrir viðburðunum í tíma.

 

Kórklæðnaður

Þegar kórinn kemur fram eru kórfélagar í snyrtilegum svörtum og/eða hvítum fötum að eigin vali. Klæðnaðurinn er stundum brotinn upp með rauðu fyrir jólin­ og með sumarlitum á vorin.

 

Uppbrot

Á hverju ári eru nokkur uppbrot á kórastarfinu. Árlega fer unglingakórinn í æfingabúðir, og á kóramót sem eru mikilvægur hluti þess að hrista hópinn saman.

Önnur uppbrot eru t.d. náttfatapartý, æfingadagar, kóraheimsóknir og ofl. Að vori fara kórarnir annaðhvort í óvissuferð eða vorferð. Á nokkurra ára fresti hefur unglingakórinn farið í vorferð erlendis t.d. til Danmerkur, Ungverjalands, Noregs, Ítalíu og síðast til Danmerkur á Barna – unglingakóramót Norðurlanda – Norbusang.

 

Foreldrasamstarf

Áhersla er lögð á gott samstarf við foreldra. Þeirra er að fylgjast með dagskrá kóranna og gera ráð fyrir æfingum og atburðum.

Mikilvægt er að tilkynna veikindi eða önnur nauðsynleg forföll með sms eða lokuðum skilaboðum á facebook. Þá er einnig treyst á aðstoð foreldra t.d. í kringum æfingabúðir og/eða vorferðir. Það hefur margoft sýnt sig að hvatning og stuðningur foreldra skiptir sköpum fyrir kórastarfið.

 

Nánari upplýsingar

Æfingatímar

Æfingar Barnakórs 
fyrir börn frá 1. -5. bekk
mánudaga kl. 15:00-15:50

Æfingar unglingakórs
fyrir ungmenni frá 6. -10. bekk
fimmtudaga kl. 17:45

Dagskrá

Skráning í barna- og unglingakór

Scroll to Top