Nú fer af stað yndislegt samstarfsverkefni yfir sumartímann sem eru sumarmessur í Garðakirkju. Þarna standa söfnuðirnir í Hafnarfirði og Garðabæ að sameiginlegu helgihaldi alla sunnudaga kl.11:00 í júní, júlí og ágúst. Við erum með messukaffi í hlöðu við bæinn Krók á Garðaholtinu og þar eru einnig skemmtilegir viðburðir. Hlökkum til að sjá ykkur í sumar![]()





