Skráning í fremingarfræðslu 2024-2025

Skráning í fremingarfræðslu 2024-2025

VELKOMIN Í FERMINGARFRÆÐSLU HAFNARFJARÐARKIRKJU
 
Fermingarfræðslan hefst með námskeiði áður en skólinn hefst 13.-15. ágúst og síðan fer fræðsla fram u.þ.b. einu sinni í mánuði. Fermingarbörnin fá fræðslu um kristna trú, kirkjuna, lífið og tilveruna og þau lífsgildi sem mikilvægt er að hafa í hávegum á lífsleiðinni. Fræðslunni lýkur með fermingarathöfn þar sem barnið játar trú sína með söfnuðinum og þiggur fyrirbæn og blessun fyrir lífsgöngu sína. Fermingarfræðslan er skírnarfræðsla kirkjunnar og ef börnin eru óskírð sjá prestar um að skíra þau í samráði við foreldra eða forráðamenn. Ef börnin geta ekki mætt á námskeiðið í ágúst vegna sumarleyfa fá þau aukatíma.
 
Jónína og Aldís Rut, prestar kirkjunnar, og Bylgja Dís, æskulýðsfulltrúi, sjá um fermingarfræðsluna ásamt góðum gestum.
 
Lifandi, fjölbreytt og skemmtileg fræðsla
Námskeið 13.-15. ágúst og fræðsla einu sinni til tvisvar í mánuði
 
Leikir, gleði, hópefli og tónlist
Byggjum upp jákvæða sjálfsmynd, traust og góð tengsl
 
Ferðalag í Vatnaskóg
Heill dagur fullur af gleði og fjöri
 
Þátttaka í helgihaldi
Innihaldsríkar fjölskyldustundir á sunnudögum
 
Þátttaka í hjálparstarfi
Skiptir máli hvað ég geri? Veitir það mér gleði að hjálpa öðrum?
 
Einstaklingsviðtöl
Viðtöl sem gera fræðsluna persónulegri
 
Slökun, íhugun, núvitund og sjálfstyrking
Aðferðir til að hvíla sig á áreitum frá tækjum og umhverfi
 
Skráning í fermingarstarfið veturinn 2024 – 2025 fer fram hér: https://hafnarfjardarkirkja.skramur.is/input.php?id=7
 
Fermingardagar 2025 eru:
Sunnudagur 30. mars kl. 11:00
Sunnudagur 6. apríl kl. 11:00
Pálmasunnudagur 13. apríl kl. 10:30
Pálmasunnudagur 13. apríl kl. 13:30
Sjómannadagurinn 1. júní kl. 11:00
 
Fyrirspurnir má senda á netfangið: jonina@hafnarfjardarkirkja.is, aldisrut@hafnarfjardarkirkja.is og bylgja@hafnarfjardarkirkja.is
 
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram (fyllsta trúnaðar verður gætt við meðferð og varðveislu upplýsinganna):
 
• Nafn fermingarbarns
• Kennitala
• Heimilisfang
• Skóli
• Trúfélag barns
• Skírnardagur barns (eða upplýsingar um að barnið sé óskírt)
• Nafn/ nöfn foreldra
• Kennitala foreldra
• Sími/símar
• Netfang foreldra
• Aðrar upplýsingar sem foreldrar vilja koma á framfæri
Scroll to Top