Organisti – Kórstjóri – Listrænn stjórnandi

Organisti – Kórstjóri – Listrænn stjórnandi

Starf organista í Hafnarfjarðarkirkju laust til umsóknar

Hafnarfjarðarsókn auglýsir laust til umsóknar starf organista. Um er að ræða 100% stöðu. Í Hafnarfjarðarkirkju eru tvö glæsileg orgel auk píanós og flygils í safnaðarheimili. Uppi á kirkjuloftinu stendur orgel Christians Schefflers, vígt árið 2008 og í kirkjuskipinu sjálfu er orgel smíðað af Kristian Wegscheider, vígt árið 2009. Umsjón beggja orgela er í höndum organista Hafnarfjarðarkirkju. Í kirkjunni er öflugt kórastarf en fjórir kórar eru starfandi við kirkjuna. Barbörukórinn, ungmennakórinn Bergmál, unglingakór og barnakór.

Hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða háskólamenntun í kirkjutónlist og hafi reynslu og þekkingu á kórstjórn.
  • Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir mikilli hæfni í mannlegum samskiptum og hefur vilja til að starfa að metnaði með teymi presta, starfsfólks og sjálfboðaliða.
  • Leitað er að einstaklingi sem býr yfir hugmyndaauðgi, krafti og vilja til að efla og styrkja fjölbreytt tónlistarstarf Hafnarfjarðarkirkju.
  • Viðkomandi skal vera stundvís og búa yfir góðum skipulagshæfileikum.
  • Nánari starfslýsing mun fylgja starfssamningi.

Helstu starfsskyldur organista:

  • Organisti ber ábyrgð á tónlistarstarfi kirkjunnar.
  • Leikur undir í helgihaldi, athöfnum og öðru safnaðarstarfi.
  • Stjórnar fagkór kirkjunnar, Barbörukórnum og á í nánu samstarfi við aðra kórstjóra kirkjunnar.
  • Hefur umsjón með hljóðfærum kirkjunnar og styður við safnaðarstarf í samstarfi við presta, sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar.

Launakjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organista FÍO. Við Hafnarfjarðarkirkju er fjölbreytt safnaðarstarf og messað hvern helgan dag. Við kirkjuna starfa þrír prestar ásamt staðarhaldara, kirkjuverði, organista, kórstjórum, upplýsinga- og æskulýðsfulltrúa auk sjálfboðaliða.

Umsóknarfrestur um starfið er til 21. júlí nk. Starfið veitist frá 1. september nk.

Með umsóknum skulu fylgja afrit af prófskírteinum og ferilskrá og samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónína Ólafsdóttir, sóknarprestur, í síma 867-0970, jonina@hafnarfjardarkirkja. is og Magnús Gunnarsson, formaður sóknarnefndar, í síma 665-8910, magnus@haukar.is

Umsóknum skal skilað á netfangið magnus@haukar.is

Scroll to Top