Opið fyrir skráningu í fermingarfræðslu 2025-2026

Opið fyrir skráningu í fermingarfræðslu 2025-2026

VELKOMIN Í FERMINGARFRÆÐSLU HAFNARFJARÐARKIRKJU

Skráning í fermingarstarfið veturinn 2025 – 2026 fer fram hér:
https://hafnarfjardarkirkja.skramur.is/input.php?id=8

Fermingarfræðslan hefst með námskeiði áður en skólinn hefst í ágúst og eftir það fer fram fræðsla u.þ.b. einu sinni til tvisvar í mánuði.

Fermingarbörnin fá fræðslu um kristna trú, kirkjuna, lífið og tilveruna og góð lífsgildi. Fræðslunni lýkur með fermingarathöfn þar sem barnið þiggur fyrirbæn og blessun fyrir lífsgöngu sína.

Fermingarfræðslan er skírnarfræðsla kirkjunnar og ef börnin eru óskírð sjá prestar um að skíra þau í samráði við foreldra eða forráðamenn.

Ef börnin geta ekki mætt á námskeiðið í ágúst vegna sumarleyfa fá þau aukatíma.

Jónína og Þuríður, prestar kirkjunnar, og Bylgja Dís, æskulýðsfulltrúi, sjá um fermingarfræðsluna ásamt góðum gestum.

Lifandi, fjölbreytt og skemmtileg fræðsla – Námskeið í ágúst og fræðsla einu sinni til tvisvar í mánuði.

Leikir, gleði, hópefli og tónlist – Byggjum upp jákvæða sjálfsmynd, traust og góð tengsl
Ferðalag í Vatnaskóg – Heill dagur fullur af gleði og fjöri
Þátttaka í helgihaldi – Innihaldsríkar fjölskyldustundir á sunnudögum
Þátttaka í hjálparstarfi – Skiptir máli hvað ég geri? Veitir það mér gleði að hjálpa öðrum?
Einstaklingsviðtöl – Viðtöl sem gera fræðsluna persónulegri
Slökun, íhugun, núvitund og sjálfstyrking – Aðferðir til að hvíla sig á áreitum frá tækjum og umhverfi

Fermingardagar vorið 2026:
Pálmasunnudagur: 29. mars kl. 10.30
Pálmasunnudagur: 29. mars kl. 13.30
Sunnudagur: 19. apríl kl. 11.00
Sunnudagur: 26. apríl 2026 kl 11.00
Sjómannasunnudagur: 7. júní kl. 11.00

Fyrirspurnir má senda á netföngin: jonina@hafnarfjardarkirkja.is, thuridur@hafnarfjardarkirkja.is og bylgja@hafnarfjardarkirkja.is
Scroll to Top