Nýr prestur ráðinn til starfa

Nýr prestur ráðinn til starfa

Við bjóðum nýráðinn prest hjartanlega velkominn og hlökkum til samstarfsins. Sr. Þuríður mun hefja störf í byrjun nóvember 2024.

Sr. Þuríður Björg er fædd á Akureyri þann 21. nóvember árið 1989 og uppalin á Vopnafirði.

Foreldrar hennar eru Árni Magnússon, rafvirkjameistari, og Ásgerður Sigurðardóttir sem er að njóta þess að vera eldriborgari.

Þuríður er yngst þriggja systkina.

Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2009 og útskrifaðist með embættispróf frá Guðfræði og trúarbragðadeild Háskóla Íslands 2017 og vígðist sem sóknarprestur til Hofsprestakalls í Vopnafirði sama ár.

Þuríður Björg lauk diplómugráðu í sálgæslu árið 2021.

Hún hefur starfað sem sjúkrahúsprestur á Landspítalanum í afleysingu frá því í nóvember 2023.

Þuríður Björg sat í stjórn Lútherska heimssambandsins fyrir hönd þjóðkirkju Íslands árin 2017-2023 og hefur setið á kirkjuþingi síðan 2020.

Hún situr nú í stjórn þjóðkirkjunnar.

Á árum sínum á Vopnafirði hefur hún verið formaður veiðifélags Hofsár og Sunnudalsár, setið í stjórn veiðifélags Sandvíkur og í stjórn Kvenfélagsins Lindarinnar.

Þuríður Björg er í sambúð með Ólafi Ragnari Garðarssyni, fjármálaverkfræðingi og framkvæmdarstjóra Angling IQ.

Þau eiga tvö börn 10 og 11 ára og eru búsett í Mosfellsbæ.

Scroll to Top