Messur kl. 11 og kl. 14 og sunnudagaskóli

Messur kl. 11 og kl. 14 og sunnudagaskóli

Haustmessa í Krýsuvíkurkirkju kl. 14

Guðsþjónusta á degi kærleiksþjónustunnar í Hafnarfjarðarkirkju kl. 11

Sunnudagaskólinn hefst eftir sumarfrí kl. 11 í safnaðarheimilinu

 

Hin árlega haustmessa verður haldin í Krýsuvíkurkirkju sunnudaginn 3. september kl. 14.

Sr. Jónína Ólafsdóttir, sóknarprestur í Hafnarfjarðarsókn, messar og Kári Þormar nýr organisti Hafnarfjarðarprestakalls leikur á orgel. Elfa Dröfn Stefánsdóttir syngur.

Við lok messu verður Upprisa, altaristafla Krýsuvíkurkirkju eftir Svein Björnsson tekin niður og flutt í Hafnarfjarðarkirkju þar sem hún á sér veturstað í kirkjuskipinu. Eftir messuna er boðið til kirkjukaffis í Sveinshúsi en þar stendur yfir málverkasýning á verkum Sveins Björnssonar sem nefnist Konan mín.

Í Hafnarfjarðarkirkju verður sama dag messa kl. 11 að venju en þar verður dagur kærleiksþjónustunnar hafður í hávegum. Sr. Jónína þjónar ásamt Sigríði Valdimarsdóttur djákna og kennara en Sigríður mun einnig prédika.

Myndin af Krýsuvíkurkirkju er tekin af Olgu Björt Þórðardóttur og birt með hennar leyfi.

Sunnudagaskólinn hefst á ný á sunnudaginn kl. 11 í safnaðarheimilinu. Söngur, leikur, sögur, undrun, gleði og góða samvera!

Verið öll hjartanlega velkomin í helgihald í Hafnarfjarðarprestakalli næsta sunnudag!

 

Scroll to Top