Hið árlega Konukvöld Hafnarfjarðarkirkju verður þriðjudagskvöldið 26.maí kl. 19.00 í Hafnarfjarðarkirkju.
Hin frábæra Hera Björk söngkona kemur til okkar og mun syngja fallega og ljúfa tóna.
Sóley Kristjánsdóttir uppistandari og fyrirlesari mun kitla hláturtaugarnar okkar en hún blandar húmor og innsýn í mannlegt eðli til að skapa tengingu og veita innblástur.
Sr. Jónína, Sr. Petrína og Yrja munu stýra happdrætti kvöldsins en þar verða fjölmargir vinningar frá fyrirtækjum í Hafnarfirði. Miðinn kostar 1000 krónur. Enginn posi á staðnum.
Einnig verða í boði léttar veitingar. Við hlökkum til að sjá ykkur, það þarf ekki að skrá sig og kostar ekkert inn.
Verið velkomin.




