Kirkjubrall 16. febrúar kl. 11:00

Kirkjubrall 16. febrúar kl. 11:00

Verið öll velkomin í Kirkjubrall Hafnarfjarðarkirkju sunnudaginn 16. febrúar kl. 11:00.
 
Í Kirkjubralli taka börn og fullorðnir sameiginlega þátt í sköpun, leikjum, borðhaldi og helgihaldi. Tilgangurinn er að fjölskyldan geti átt gæðastund þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
 
Mælt er með að koma í fötum sem mega verða skítug.
 
Kirkjubrall byrjar á því að gestir fara á milli stöðva þar sem boðið er upp á föndur, leiki, snarl o.sfrv. Eftir u.þ.b. 40 mínútur söfnumst við öll saman í kirkjunni og heyrum söguna sem við vorum að leika og föndra útfrá og hlustum á Barnakór Hafnarfjarðarkirkju syngja 2 lög.
 
Eftir stundina er öllum boðið til málsverðar í Hásölum sem sr. Jónína og sr. Þura elda.
 
Verið öll velkomin!
Scroll to Top