Fríða Freyja Frigg verður með gjörning í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl 14.00. Með gjörningnum vill listamaðurinn leitast við að slaka á huganum og tengja við hjartað. Viskuna sem býr innra með okkur öllum
Fríða Freyja Frigg heldur rými fyrir hjartatengingu sem leitast við að fara úr huganum (sem á það til að lifa í fortíð eða framtíð) í hjartað sem lifir ávallt í núinu. Við tengjum hjörtun okkar saman og kjörnum okkur í líkamanum, vitnum okkar líðan og sýnum okkur mildi. Með slökunarhugleiðslu og lófa á hjartasvæðinu náum við að hvíla okkur frá huganum.
Fríða spilar à hörpu og kristaskálar með rödd sem kemur frá hjartanu. Mælt er með að koma í þægilegum fötum og jafnvel með púða og eða teppi til að gera stundina notalegri.
Allir eru hjartanlega velkomnir að koma á þennan viðburð.
Framlag Hafnarfjarðarkirkju til Kirkjulista vikunnar er einnig myndlistar sýningin ,,Krosspunktur sannleikans – niðurhal ljóssins.“ þar sem Fríða Freyja Frigg sýnir listaverk sín sem unnin eru með olíu á striga í mörgum lögum. Listakonan er þekkt hérlendis sem erlendis fyrir verk sín þar sem niðurhal ljóssins að ofan kemur ríkulega við sögu.





