Eldriborgarasamvera í nóvember

Eldriborgarasamvera í nóvember

🍂 Eldriborgarasamverur í Hafnarfjarðarkirkju – nóvember 🍂

Fjölbreytt og áhugaverð dagskrá verður á eldriborgarasamverum í Hafnarfjarðarkirkju í nóvember. Við fáum til okkar góða gesti sem munu fræða okkur, skemmta og deila með okkur áhugaverðum frásögnum.

Dagskrá nóvember:

3. nóvember – Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur fjallar um „Steinunni á Sjöundá“.

10. nóvember – Bergþór Pálsson söngvari kemur í heimsókn.

17. nóvember – Séra Sveinn Valgeirsson segir frá ferð sinni til Bútan.

24. nóvember – Séra Sighvatur Karlsson fjallar um Jakobsveginn.

Verið hjartanlega velkomin í notalegar samverustundir, fróðleik og góðan félagsskap!

Scroll to Top