Barbörukórinn Heldur tónleika 31.maí

Barbörukórinn Heldur tónleika 31.maí

Barbörukórinn býður til tónleika 31. maí kl. 17:00 í Hafnarfjarðarkirkju ásamt sellóleikaranum Þórdísi Gerði Jónsdóttur og píanóleikaranum Kjartani Valdemarssyni. Kórinn hefur um árabil skipað mikilvægan sess í íslensku tónlistarlífi og er þekktur fyrir þéttan samhljóm og einlæga túlkun sem nær beint til hjartans.
Flutt verða valin verk eftir íslensk og erlend tónskáld þar sem ólíkir heimar mætast. 
Miðasala á tónleikana fer fram á tix.is. 

Upplýsingar um flytjendur: 
Barbörukórinn er kammerkór, stofnaður vorið 2007 af Guðmundi Sigurðssyni, fyrrverandi organista Hafnarfjarðarkirkju, og nokkrum söngvurum. Kórinn kennir sig við heilaga Barböru en stytta af dýrlingnum fannst árið 1950 við uppgröft í fornri kapellu í Kapelluhrauni í Hafnarfirði. Kórinn kemur reglulega fram við helgihald Hafnarfjarðarkirkju auk tónleikahalds og söngs við útfarir þar og víða. 
Þórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna
og tónsmíðar. Hún er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective, sem hefur vakið eftirtekt fyrir frumlegt verkefnaval og útvíkkun á hlutverki hins klassíska flytjenda. Þórdís hefur leikið reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2018 og hefur verið í leikhúshljómsveitum við Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið. Hún gaf út hljómplötuna Vistir með hennar eigin jazz-tónsmíðum og útsetningum vorið 2021. Í maí 2025 hljóðritaði hún nýja plötu með lögum eftir hana, innblásin af íslenskum ljóðum. Þórdís hefur að auki starfað sem útsetjari og tónskáld en hún hefur útsett eigin verk fyrir Stórsveit Reykjavíkur og gert útsetningar fyrir Mugison. Þórdís er hjúkrunarfræðingur og starfar í hlutastarfi á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins.
Kjartan Valdemarsson nam píanóleik við Tónlistarskóla Mosfellsbæjar áður en hann hélt til Bandaríkjanna, en hann stundaði nám við Berklee College of Music 1985-1989. Auk þess að leika jazztónlist með öllum sem nöfnum tjáir að nefna í íslensku jazzlífi hefur Kjartan spilað mikið af popptónlist, m.a. með Todmobile og Mannakorn. Hann hefur starfað í leikhúsum og unnið mikið í hljóðverum, bæði sem hljómborðsleikari og upptökustjóri. Kjartan hefur gert mikið af útsetningum, m.a. fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stórsveit Reykjavíkur. Þá lék Kjartan um tíma með einni af fremstu stórsveitum Svíþjóðar; Norbotten Big Band.
Kjartan hefur fengið tónlistarverðlaunin fyrir tónverk ársins og sem flytjandi ársins í djass flokki og verið tilnefndur til tónlistaverðlauna Norðurlandaráðs.
 
Verið hjartanlega velkomin!
Scroll to Top