Allra heilagra messa í Hafnarfjarðarkirkju sunnudaginn 1.nóvember

Allra heilagra messa í Hafnarfjarðarkirkju sunnudaginn 1.nóvember

Allra heilagra messa í
Hafnarfjarðarkirkju🕯️
Sunnudaginn 1. nóvember kl. 17.00 verður haldin Allra heilagra messa í Hafnarfjarðarkirkju þar sem við minnumst þeirra ástvina sem fallnir eru frá.
Í stundinni gefst tækifæri til að staldra við, minnast þeirra sem við söknum og tendra ljós í minningu þeirra.
„Fyrir þau öll er fá nú hvíld hjá þér.“ (Sb. 203).
Prestar kirkjunnar leiða stundina og Cantus, kór Hafnarfjarðarkirkju, syngur undir stjórn Kára Þormars organista.
Verið hjartanlega velkomin 🕊️
Scroll to Top