Fyrsti í aðventu er á sunnudaginn kemur. Þá hefur skapast falleg hefð að skátar bera inn friðarlogann frá Betlehem. Kveikt verður á fyrsta aðventukertinu og við eigum góða stund saman. Sr. Sighatur þjónar og Kári Þormar og félagar úr Barbörukórnum leiða tónlistina. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Verið hjartanlega velkomin.
Fyrsti í aðventu messa og sunnudagaskóli
Fyrsti í aðventu messa og sunnudagaskóli
Hafnarfjarðarkirkja
Til staðar fyrir íbúa Hafnarfjarðar í blíðu og stríðu í yfir 100 ár.