Messa og listasýning
Á annan í aðventu, 4. desember kl. 11, bjóðum við upp á hefðbundna messu, kveikt verður á öðru aðventukertinu og skátar bera inn friðarljósið frá Betlehem. Á eftir messunni gefst gestum kostur á að skoða listasýningu 10-12 ára barna sem hafa hittst í safnaðarheimilinu undanfarnar vikur í Listafjöri.
Sr. Aldís Rut Gísladóttir þjónar og Kári Þormar sér um tónlistina ásamt Barbörukórnum. Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimilinu sama tíma.
Hafnarfjarðarkirkja
Til staðar fyrir íbúa Hafnarfjarðar í blíðu og stríðu í yfir 100 ár.