Sunnudagaskólarnir í Hafnarfjarðarkirkju og Víðistaðakirkju halda sameiginlega hausthátíð sunnudaginn 4. október kl. 11.00 í Hafnarfjarðarkirkju. 
Íþróttaálfurinn og Solla stirða koma í heimsókn alla leið frá Latabæ og ætla að skemmta okkur!
Prestar og æskulýðsfulltrúar kirknanna sjá um stundina og barna- og unglingakórar Hafnarfjarðarkirkju og Víðistaðakirkju syngja undir stjórn Helgu Sigríðar Kolbeins.
Það verður gleði, söngur og skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna. 
Verið hjartanlega velkomin, hlökkum til að sjá ykkur!

Kirkjan
Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd, saga kirkjunnar, gjaldskrá og útleiga á veislusal.




