Messa í Krýsuvíkurkirkju sunnudaginn 14. júní kl 14.00.
Sr.Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar.
Sr. Jónína Ólafsdóttir þjónar fyrir altari.
Kári Þormar spilar undir almennan safnaðarsöng.
Messukaffi í Sveinssafni.
Í kjölfar messunnar í Krýsuvíkurkirkju og messukaffis í Sveinshúsi verður opnuð ný sýning Sveinssafns sem nefnist „Nú er það afstrakt.“ Hún fjallar um endalok listferils Sveins Björnssonar og mátar sig við sýninguna sem fyrir var sem var um upphaf listferils hans. Eins og titill sýningarinnar ber með sér er hún um tilkomu afstraktsins í list Sveins og baráttuna sem þessi stílbreyting fól í sér.
Allir hjartanlega velkomnir.





