Gallerí Ljósbrot
Gallerí Ljósbrot
Tengiliður við listafólk er sr Sighvatur Karlsson, prestur. Sími 861 2317 og netfang: sighvatur@hafnarfjardarkirkja.is.

Gallerí Ljósbrot opnað í Strandbergi
Á fundi sóknarnefndar vorið 2025 var samþykkt að opna formlega Gallerí Ljósbrot í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju með sýningu á verkum Sveins Björnssonar í tilefni af aldarafmæli hans á þessu ári. Sýningin opnaði á Uppstigningardag og var tekin niður í lok September.
Gestalistamaður októbermánaðar er Thulin Johansen. Gestalistamaður nóvembermánaðar verður Kristbergur Pétursson. Listamenn fá að sýna í Ljósbroti gegn vægu gjaldi sem rennur til kaupa á endurskinsmerkjum fyrir börn og fullorðna.
Listamenn mánaðarins
2026
Maí og júní
Listakonur frá Art67 Gallerý á Laugavegi 61 í Reykjavík sýna verk sín í mai og júní 2026 í Gallerí Ljósbroti í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Þær eru Gréta Erlendsdóttir, María Manda Ívarsdóttir, Hafdís Brands, Vigdís Bjarnadóttir, Birna Smith, Marta Rypa, Yvonne K. Nilsen, Þóra Ben, Andrea Ólafs.
2025 - 2026
Desember og janúar
Helena Sivertssen frá Færeyjum er gestalistamaður desember 2025 og janúar 2026 í Gallerí Ljósbroti.
2025
Nóvember
Listamaður nóvembermánaðar í Gallerí Ljósbroti var Kristbergur Pétursson.
2025
Október
Listamaður októbermánaðar í Gallerí Ljósbroti var Thulin Johansen.
2025
Júní - September
Listamaður Gallerí Ljósbrots mánuðina júní til september var Sveinn Björnsson. Sjá nánar.