Ferming
Ferming er guðsþjónusta, þar sem skírður einstaklingur staðfestir með játningu sinni þá játningu, sem aðrir fóru með fyrir hans hönd á unga aldri. Fermingin fer fram, þegar viðkomandi barn hefur lokið fermingarundirbúningi og fræðslu fyrir athöfnina.
Fermingarbörn eru klædd hvítum kirtlum og sitja í kór kirkjunnar. Tónlist og sálmar eru gjarnan valin úr æskulýðsstarfi kirkjunnar, lög sem fermingarbörnin þekkja.
Þegar fermingarbarn er kallað upp að altari með fullu nafni til þess að staðfesta skírnina er það spurt; viltu leitast við að hafa frelsarann Jesú Krist að leiðtoga lífsins? Fermingarbarn svarar játandi og krýpur síðan niður. Prestur leggur hönd á höfuð þess og segir; almáttur Guð þinn ástríki faðir, styrki þig og leiði að eilífu. Þá rís fermingarbarn upp og tekur í hönd prestsins og mælir ritningargreinina, sem fermingarbarnið hefur sjálft valið úr ritningunni.
Altarisganga er hluti fermingarinnar og fer hún fram í fermingarmessunni og fer fram eins og í öllum öðrum messum vetrarins í kirkjunni.
Fermingarbörn eru beðin að vera dugleg að sækja messur með fjölskyldum sínum og þau skulu mæta í messur ekki sjaldnar er 10 sinnum yfir veturinn. Æskulýðsstarfið er einnig opið fermingarbörnunum alla þriðjudaga kl.19.00-21.00