Aðrar síður Minimize

  
 Hafnarfjarðarkirkja Minimize

Hafnarfjarðarkirkja var vígð 20. desember 1914. Áður áttu Hafnfirðingar kirkjusókn að Görðum á Álftanesi. Þegar Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi árið 1908 komst skriður á kirkjubyggingarmálið, þótt sú hugmynd hefði reyndar komið fram áður, t.d. um miðja 19. öld að byggð yrði kirkja í Firðinum. Hafnfirðingar leituðu til Rögnvalds Ólafssonar um teikningu að kirkju og skilaði hann teikningu í febrúar 1909. Samkvæmt henni var kirkjan úr steinsteypu og átti að taka 500 manns í sæti eða þriðjung íbúa kaupstaðarins. Var kirkjunni valinn staður í landi sem bæjarfógeti hafði til umsjónar við Strandgötu. Framkvæmdir við kirkjugrunninn hófust haustið 1913 og lauk smíðinni á aðventu 1914. Yfirsmiður var Guðni Þorláksson, en hann andaðist úr lungnabólgu um það leyti sem smíði kirkjunnar lauk og var lík hans borið í kirkjuna á Þorláksmessu. Biskupinn, herra Þórhallur Bjarnason, vígði kirkjuna 20. des, 1914.
 


 Print   
  Innskráning Hafnarfjarðarkirkja við Strandgötu | Sími: 520 5700