Fermingarfræðsla Hafnarfjarðarkirkju verður næsta vetur með mjög svo breyttu sniði. Þetta er gert til þess að koma enn frekar til móts við þarfir önnum kafinna fjölskyldna. Auk þessa hafa nú þegar verið gerðar veigamiklar breytingar á fermingarmessunum varðandi lengd og léttleika. Kynning á þessu nýja fyrirkomulagi fyrir verðandi fermingarbörn og fermingarforeldra verður haldin sunnudaginn 16. maí kl.11 við messu í Hafnarfjarðarkirkju.
Í stað vikulegrar kennslu verður fimm daga sumarnámskeið auk fræðslustunda um veturinn. Fræðslan er skipulögð í samræmi við námskrá fermingarstarfa Þjóðkirkjunnar.
Fermingarfræðslan hefst á sumarnámskeiði 16. - 22. ágúst 2010.
Mikilvægt er að unglingarnir taki þátt í námskeiðinu ætli þau að fermast í Hafnarfjarðarkirkju vorið 2011. Ef af einhverjum ástæðum unglingur getur ekki tekið þátt í sumarnámskeiði þá endilega hafið samband og við finnum á því lausn. Námskeiðsvikuna, mán-fim 10-16 verður hópastarf í Hafnarfjarðarkirkju en á fimmtudegi verður haldið í spennandi ferð í Vatnaskóg. Í Vatnaskógi bíða okkar ótal skemmtilegheit, matur og kvöldvaka, heimkoma er síðdegis á föstudag. Verði ferðarinnar er stillt mjög í hóf.
Femingarbörnin koma með skriffæri á sumarnámskeiðið, annað sem þarf verður afhent á staðnum, kennslubókin er gjöf frá söfnuðinum. Léttur hádegisverður námskeiðsvikuna verður einnig í boði safnaðarins.
Að námskeiði loknu koma Foreldrar og börn saman til messu sunnudaginn 22. ágúst kl. 11.
Áfram hittumst við svo um veturinn í 6 messum og 6 fræðslusamverum. Á fræðslusamverunum verður margt spennandi í boði, Unnið verður með listsköpun, farið í leiki og margt fleira skemmtilegt. Auk þessa verða haldnir tveir foreldrafundir haust og vor. Allar dagsetningar liggja fyrir nú þegar svo auðvelt er að skipuleggja tíma sinn. Gjald fyrir fermingarfræðsluna 2010-2011 er líkt og undanfarin ár 9.300.- og verður það innheimt að sumarnámskeiði loknu.
Skráning í fermingarfræðsluna er á kynningarfundinum eða á vefsíðu kirkjunnar hér.